Má hrista rassinn fyrir barnsfaðir?

Nýtt lag tónlistarfólksins UB (Unnar Borgar Ólafsdóttur) og Daníels Dags Hermannssonar, „Barnsfaðir“, hefur vakið mikla athygli síðan það kom út 10. júlí 2026. Þótt lagið hafi náð vinsældum á streymisveitum hefur texti þess slegið feilnótu að mati málvöndunarmanna sem gagnrýna beygingu í viðlaginu.Margrét Erla Maack og Ingunn Lára Kristjánsdóttir ræddu málið í Vasadiskó á Rás 2.Nýútgefið lag UB og Daníels Dags er kveikjan að umræðu um mörk skáldaleyfis og íslenskrar málvöndunar. Annar höfunda lagsins er enginn nýliði í að vekja athygli á samfélagsmiðlum.Lagið, sem gefið er út af plötuútgáfunni Sticky (sem er á vegum Priksins), inniheldur viðlagið: „hristu rassinn fyrir barnsfaðir þinn“. Þessi setning varð kveikjan að umræðu á TikTok. > Dansaðu bitch, da dansaðu bitch, hristu rassinn fyrir
Má hrista rassinn fyrir barnsfaðir?

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd