Þrálátri hrakfallasögu Herjólfs líklega lokið

Herjólfur hóf siglingar að nýju í morgun samkvæmt sumaráætlun að lokinni viðgerð á rafmótor skipsins. Framkvæmdastjóri segir bjartari tíma fram undan og sumarbrag yfir Vestmannaeyjum.Hann skilur gremju íbúa við Breiðafjörð vegna tilfærslu Baldurs undanfarnar vikur og segir mikilvægt að gera aðrar ráðstafanir ef Baldur eigi ekki að halda áfram að vera varaskip Herjólfs.Miklar raskanir hafa verið á starfsemi Herjólfs síðustu mánuði sem hafa haft umtalsverð áhrif á samgöngur til og frá Vestmannaeyjum. Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs, segir þrautagöngu skipsins vonandi lokið.„Það sem við höfum verið að takast á við það sem af er ári eru margar fjölbreyttar áskoranir. Bæði með höfnina og svo muna margir þegar bókunarkerfið brann í Amsterdam. Svo hefur verið vesen með mótori
Þrálátri hrakfallasögu Herjólfs líklega lokið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd