Íslendingar og ferðamenn hér á landi hafa lent í vandræðum með að ná sambandi við 112 eftir að slökkt var á 2G og 3G sendum. Vandræðin hafa snúið að því að sumir farsímar leiti á 2G eða 3G kerfin þegar reynt er að hringja neyðarsímtal og ná þar af leiðandi ekki í gegn. Farsímar hafa virkað í allar aðrar aðgerðir, hvort sem það er að vafra um netið eða hringja í önnur sjö stafa símanúmer. Af þeim sökum hefur Neyðarlínan og Fjarskiptastofa ákveðið að bæta við númerinu 599-0112.Í fréttatilkynningu frá Fjarskiptastofu er vakin athygli á því að: „ símtöl í þetta númer eru meðhöndluð sem almenn símtöl. Þau njóta ekki sama forgangs og símtöl í 112 og senda ekki sjálfkrafa staðsetningarupplýsingar til neyðarþjónustu. Í neyðartilfellum skal þó alltaf hringja fyrst í 112. Varanúmerið er aðeins ætlað