Skógareldar loga á stórum svæðum á Ítalíu, í Frakklandi og á Spáni. Þúsundir hafa þurft að flýja eldana sem magnast vegna mikils hita og sterkra vinda. Enn ein hitabylgjan gengur yfir suðurhluta Evrópu. Ný vísindaleg greining bendir til þess að mikill hiti af völdum loftslagsbreytinga sé að magna upp þurrka í álfunni. ÁSTANDIÐ Á SIKILEY ALVARLEGT Um sex þúsund slökkviliðsmenn, landverðir og fulltrúar almannavarna berjast við tugi elda á Sikiley á Ítalíu. Eldarnir hafa logað dögum saman. Matteo Piantedosi, innanríkisráðherra Ítalíu, segir slökkviliðsmann hafa látist eftir að hafa veikst meðan hann sinnti slökkvistarfi.Talsmaður almannavarna á Ítalíu sagði við AFP-fréttaveituna að ástandið á Sikiley væri alvarlegt og að eldarnir hefðu magnast upp vegna mikils hita og mjög þurrs jarðvegs.R