Vongóð um farsæla lausn á starfsemi kaffistofu Samhjálpar

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir mjög mikilvægt að kaffistofa Samhjálpar hafi öruggan stað í Reykjavík. Hún er vongóð um að góð og farsæl lausn finnist á næstu dögum og vikum. Borginni sé afar umhugað um gesti kaffistofunnar og að þeir fái öruggt skjól. KAFFISTOFA SAMHJÁLPAR BRÁTT Á GÖTUNNI Umræða um starfsemi kaffistofu Samhjálpar hefur verið í algleymingi síðustu vikurnar. Allt var til reiðu að opna kaffistofuna á Grensásvegi í júní þegar úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi byggingarleyfi hennar úr gildi á þeim grundvelli að deiliskipulag hefði ekki legið fyrir. Þá höfðu íbúar og fyrirtæki í nágrenni Grensásvegar mótmælt staðsetningunni. Undanfarna mánuði hefur kaffistofan verið í bráðabirgðahúsnæði í Fíladelfíukirkjunni en missir það eftir viku. Þar þiggja 150 mann
Vongóð um farsæla lausn á starfsemi kaffistofu Samhjálpar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd