„Allt í einu fóru augun af mér og upp til himna“

Mugison var á tónleikaferð um landið þegar Fram undan á Rás 2 heyrði í honum. Hann deildi með hlustendum hálfótrúlegum sögum af rosabaug um sólu sem hefur elt hann uppi í sumar og truflað einbeitingu tónleikagesta.„Ég var að spila lag númer tvö eða þrjú, þá sé ég að það fer um hópinn. Eins og það sé draugur á svæðinu. Allt í einu fóru augu gesta af mér og upp til himna,“ segir Örn Guðmundsson, eða Mugison, og nefnir hversu skrýtið það sé að upplifa þetta. Sagan endurtók sig svo í Þórsmörk og segist hann hafa ruglast í lögunum í bæði skiptin. Tónleikagestir hafa þrisvar deilt mynd á miðla hans af listamanninum með rosabaug fyrir ofan hann.Erni finnst fyndið að sjá alla á sama tíma horfa eitthvað annað og spyr sig þá ósjálfrátt: „Bíddu, hvað gerðist? Er ég ber að neðan?“ segir Mugison.
„Allt í einu fóru augun af mér og upp til himna“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd