Björgunarsveitir frá Kirkjubæjarklaustri að Höfn voru kallaðar út klukkan hálf tvö í nótt vegna ferðamanna sem villtust í svartaþoku við Kristínartinda í Vatnajökulsþjóðgarði.„Sveitin í Öræfunum átti þarna tvo, þrjá öfluga einstaklinga sem svöruðu kallinu strax og fóru gangandi af stað frá Skaftafelli og upp að Kristínartindum,“ segir Friðrik Jónas Friðriksson, formaður svæðisstjórnar.Alls tóku fimmtán þátt í aðgerðunum, öll fótgangandi.„Það er ekki fært á neinum tækjum á Skaftafellsheiðinni og hefur aldrei verið þannig þetta er erfitt svæði hvað það varðar og þú kemst ekkert inná þetta eða getur nálgast þetta neins staðar á neinum tækjum,“ segir Friðrik Jónas.Þegar þokunni létti um stund var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð til aðstoðar við leitina.„En það var ekki nema svona eins og hálf