Kaupendur hafa meira að segja um kaupverð fasteigna en áður

Kaupendur á húsnæðismarkaði eru í sterkari samningsstöðu en áður, segir yfirhagfræðingur hjá Húsnæðis-, mannvirkja- o skipulagsstofnun (HMS). Kaupgeta er þó takmörkuð og íbúðaverð hátt.Í maí seldust um 77% íbúða á höfuðborgarsvæðinu undir auglýstu söluverði. Hlutfallið hefur ekki mælst hærra síðan í apríl 2020. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri mánaðarskýrslu HMS.Jónas Atli Gunnarsson, yfirhagfræðingur hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, segir kaupendur í sterkari samningsstöðu en áður.„Þeir geta gefið sér meiri tíma í að skoða eignir áður en þeir kaupa og ákveða hvort þeir vilji kaupa þessa eign og hafa meira að segja um kaupverð á eigninni. Kaupgeta er hins vegar takmörkuð þar sem vextir eru háir og lánþegaskilyrði þröng og íbúðaverð hátt í sögulegu samhengi.“Hlutfal
Kaupendur hafa meira að segja um kaupverð fasteigna en áður

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd