Í opinberri heimsókn Jean-Noëls Barrots utanríkisráðherra Frakklands til Íslands á mánudag var fyrsta stopp gagnaver Verne í Reykjanesbæ. Það var ekki bara tilviljun ein sem varð til þess heldur umfangsmikil fjárfestingaráform Verne og móðurfélagsins Ardian í Frakklandi, en um er að ræða verkefni upp á fimm milljarða evra eða um 718 milljarða talið í íslenskum krónum.