Starfsmaður vínbúðar í Rajasthan á Indlandi slapp naumlega undan hlébarða sem réðst á hann inni í versluninni á mánudaginn. Hlébarðinn réðst fyrst á mann fyrir utan verslunina en þegar starfsmaðurinn heyrði lætin og kíkti fyrir horn hljóp hlébarðinn þar inn, stökk yfir afgreiðsluborðið og réðst á starfsmanninn.