Fjármálaráðherra segir það góðar fréttir að innlend verðbólga sé á undanhaldi, þótt það séu slæmar fréttir að verðbólga aukist. Forseti ASÍ segir það svo gott sem klárt mál að verðbólguviðmið kjarasamninga náist ekki í haust. Ráðherra segir að þrátt fyrir að verðbólguviðmiðið muni líklegast ekki standast hafi kaupmáttur haldist við.