Tólf mánaða verðbólga mælist 5,3% samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands og eykst lítillega en hún var 5,2% í síðasta mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,3% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,8%. Niðurstaðan er lítillega yfir spám bankanna sem gerðu allir ráð fyrir að ársverðbólga yrði óbreytt.Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir alvarlega stöðu vera að teiknast upp.„Ef þú ferð inn á hagstofan.is þá eru efstu tvær fréttirnar annars vegar þær að verðbólga fer hækkandi og hins vegar að atvinnuleysi fer hækkandi. Þetta tvennt saman er ástand sem er kallað kreppuverðbólga og getur verið mjög alvarlegur vandi sem erfitt er að vinna bug á.“Halla segir að það sem slái hana mest núna sé að verðbólga án húsnæðisliðar sé líka komin yfir forsenduákvæði