Druslugangan hefst í fjórtánda skiptið klukkan 14:00 á laugardaginn en einn skipuleggjenda segir sjaldan hafa verið þarfara að ganga en nú. Í göngunni geti fólk komið saman og skilað skömminni, fengið útrás og fundið fyrir stuðningi í hópi fólks sem trúir því.