Flug frá Íslandi til Kína hefst 26. október. Þetta tilkynnti kínverska sendiráðið á Facebook rétt í þessu.Flugfélagið Air China mun fljúga frá Keflavík til Peking með tveggja og hálfs tíma millilendingu í Kaupmannahöfn. Ferðalagið tekur rúma 14 og hálfa klukkustund. Miðinn kostar frá 210 þúsund krónum.„Mikið afrek í tvíhliða samskiptum! Þetta mun gjörbreyta ferðalögum milli Kína og Íslands sem og milli Asíu og Evrópu!“ segir í tilkynningu sendiráðsins.