Vegagerðin varar við vindum við Vatnajökul

Veðurfræðingur Vegagerðarinnar varar við allhvassri vestan- og norðvestanátt við Vatnajökul frá Skaftafelli og austur að Höfn. Hviður að 30 m/s og líkur á sandfoki á köflum. Í nótt á að lægja en bætir aftur í norðvestanáttina seint annað kvöld.Þá þurfa vegfarendur sums staðar að vara sig á vindstrengjum við fjöll, þá sérstaklega þeir sem eru á ökutækjum sem viðkvæm eru fyrir vindi. Veðurstofan varar við allhvassri sunnanátt á norðanverðu Snæfellsnesi og á Suðausturlandi í kvöld með hviðum að 25 m/s.Alma Ómarsdóttir
Vegagerðin varar við vindum við Vatnajökul

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd