Evrópusambandið hefur sektað Google um 890 milljónir evra, jafnvirði tæpra130 milljarða, króna fyrir misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Fyrirtækið er sakað um að hafa með ólöglegum hætti forgangsraðað eigin vöruframboði fram yfir vörur keppinauta.Sektirnar eru í raun tvær. Önnur hljóðar upp á 460 milljónir evra fyrir að hafa með ólöglegum hætti forgangsraðað þjónustu fyrirtækisins sjálfs, til dæmis Google Flights og Google Hotels, fram yfir þjónustu annarra fyrirtækja í leitarniðurstöðum.Hin sektin hljóðar upp á 430 milljónir evra, þar sem Google heimilaði ekki framleiðendum smáforrita að bjóða notendum forrita upp á þjónustu og tilboð sem væru aðgengileg utan Google Play Store, smáforritaveitu Google. „Með þessari ákvörðun viljum við ganga úr skugga um að það sé virkari samkeppni og að önn