Aðeins einu sinni á síðustu tíu árum hafa færri kaupsamningar um íbúðarhúsnæði verið gerðir í maí en nú. Fasteignamarkaðurinn er rólegur og framboð íbúða hefur aukist.Þetta kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis-, mannvirkja-, og skipulagsstofnunar. Kaupsamningar í maí voru færri en undanfarin ár og tíminn sem tæki að selja núverandi framboð hefur lengst töluvert frá áramótum.Á síðustu fimm árum hafa kaupendur sóst eftir ódýrari íbúðum í auknum mæli. Stofnunin segir þá þróun stafa af versnandi lánskjörum og hertum skilyrðum fyrir lántökum. Nær öll ný fasteignalán í apríl, eða 95 prósent, voru á föstum vöxtum.Leigjendum hefur fjölgað lítillega undanfarna mánuði. Ungmennum í foreldrahúsum hefur fækkað en þeim fjölgað sem búa í leiguhúsnæði.Í byggingariðnaði sjást merki um samdrátt. Nýskr