Austurfrétt liggur niðri eftir netárás

Netárás var gerð á an-hýsingu, hýsingaraðila Austurfréttar, í gær og liggur vefsíða Austurfréttar þar af leiðandi niðri. Líkur eru á því að Austurfrétt verði ekki uppfærð í dag.Austurfrétt greinir frá þessu á Facebook. Þar segir að enginn gagnaleki hafi orðið.Unnið sé að því að koma vefþjónustunni aftur af stað en það gæti tekið allan daginn. Þá er tölvupóstur fyrirtækisins einnig að hluta niðri.Austurfrétt er fjölmiðill á Austurlandi sem flytur fréttir frá landshlutanum.
Austurfrétt liggur niðri eftir netárás

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd