Verðbólga eykst lítillega

Verðbólga eykst lítillega frá síðasta mánuði. Tólf mánaða verðbólga mælist 5,3% miðað við 5,2% í síðasta mánuði.Vísitala neysluverðs miðað við verðlag í júlí hækkaði um 0,36% frá síðasta mánuði og mælist nú 693,2 stig. Án húsnæðis hækkaði hún um 0,31% og mælist 553,9 stig.Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,3% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,8%.Launavísitala hækkaði um 0,2% frá síðasta mánuði.Verðbólga var 5,2% í síðasta mánuði og hefur verið yfir 5% allt þetta ár. Það er rúmlega tvöfalt verðbólgumarkmið Seðlabankans, sem stefnir að því að verðbólga sé sem næst 2,5%. Hægt er að segja kjarasamningum á almennum markaði upp í haust ef verðbólga verður yfir 4,7% í ágúst.Föt og skór lækkuðu um 4,7% og húsbúnaður og heimilistæki lækkuðu um 2,4%. Hagstofan teng
Verðbólga eykst lítillega

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd