Þegar Ólafur Ragnar Grímsson, þáverandi forseti Íslands, ákvað að beita neitunarvaldi gegn því að þjóðin tæki á sig áhættuna af þjóðargjaldþroti vísaði hann til þess að gjá væri milli þings og þjóðar. Þá, eins og nú, var það Samfylkingin og sá hluti Sjálfstæðismanna sem nú er í Viðreisn (Þorsteinn Pálsson, Þorgerður Katrín og Benedikt Jóhannesson) sem barðist með oddi og egg fyrir Icesave-samningnum til að blíðka Evrópusambandið.