Ferðamanna leitað á Kristínartindum í nótt – fundust heil á húfi

Landhelgisgæslan, lögreglan á Suðurlandi, Björgunarfélag Hornafjarðar og Björgunarsveitin Kári leituðu tveggja ferðamanna í nótt.Þetta segir varðstjóri lögreglunnar á Suðurlandi.Ferðamennirnir, karl og kona, höfðu gengið að Kristínartindum í Vatnajökulsþjóðgarði , villst og óskað eftir aðstoð.Óskað var eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar klukkan þrjú í nótt. Hún var komin á svæðið um klukkan fimm en gat ekki aðstoðað við leitina vegna þoku. Þyrlunni var haldið á svæðinu ef þokunni skyldi létta en fólkið fannst áður en þyrlan gat athafnað sig.Ferðamennirnir fundust heilir á húfi og gátu gengið niður af tindunum með björgunarsveitarmönnum.Þyrla Landhelgisgæslunnar var komin aftur á stjórnstöð klukkan sjö í morgun.
Ferðamanna leitað á Kristínartindum í nótt – fundust heil á húfi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd