Smárafbíllinn Hyundai Inster er dálítið fyndinn, kubbslegur og stuttur, eins og hann hafi keyrt út úr teiknimynd eða tölvuleik og skoppað út á götu. Pixel ljósin ýta undir tölvuleikjalúkkið og hringlaga dagljósin eru eins og galopin augu. Mér finnst hann varla vera fullorðins bíll svona appelsínugulur og stubbalegur. En, áður en við dæmum hann eftir útlitinu er rétt að líta aðeins yfir ferilskrána.