Kanada hefur dregið sig út úr sameiginlegri opnunarhátíð fyrir opnun Gordie Howe-brúarinnar sem tengir Ontario-fylki í Kanada við Michigan-ríki í Bandaríkjunum.Þessi ákvörðun er tekin í framhaldi af tilkynningum Donalds Trumps Bandaríkjaforseta fyrr í vikunni um aukna tolla á innflutning frá Kanada.Kanadísk stjórnvöld hafa ákveðið að í staðinn verði Kanadamenn með sína eigin athöfn á morgun, þremur dögum áður en áformað er að hleypa umferð á brúna. Óvíst er hvort Bandaríkin haldi sína eigin athöfn. NEFND EFTIR EINUM BESTA HOKKÍLEIKMANNI SÖGUNNAR Trump hótaði að koma í veg fyrir opnun brúarinnar fyrr á árinu. Mark Carney forsætisráðherra Kanada tilkynnti í júní að brúin yrði opnuð en því var frestað um óákveðinn tíma vegna tæknilegra örðugleika í Bandaríkjunum.Opnun brúarinnar var endanl