Fimm taílenskir hermenn féllu í árás á eftirlitsstöð

Taílenskir hermenn á einni af eftirlitsstöðvum hersins í suðurhluta landsins.EPA / RUNGROJ YONGRITFimm hermenn taílenska hersins féllu í árás á eftirlitsstöð í suðurhluta landsins í gærkvöld. Sex almennir borgarar særðust.Í yfirlýsingu hersins segir að árásarmenn hafi skotið á eftirlitsstöðina og kastað rörasprengjum í átt að henni. Hún er í Narathiwat-héraði sem er eitt þriggja héraða í landinu þar sem meirihluti íbúa er múslimar.Uppreisnarhópar sem berjast fyrir aukinni sjálfsstjórn hafa reglulega gert árásir sem beinast gegn öryggissveitum landsins.Yfirvöld segja yfir sjö þúsund hafa farist í sambærilegum árásum í syðstu héruðum landsins frá árinu 2004.
Fimm taílenskir hermenn féllu í árás á eftirlitsstöð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd