Flak Douglas DC-4-flugvélar Pan American-flugfélagsins sem fórst í Atlantshafi fyrir 74 árum er fundið. Flak vélarinnar fannst á um 610 metra dýpi undan ströndum Púertó Ríkó með aðstoð dróna sem búinn var ómsjá.Flugvélin, sem bar heitið Clipper Endeavor, var á leið frá flugvellinum í San Juan í Púertó Ríkó til New York í Bandaríkjunum. Báðir hreyflar á hægri væng vélarinnar stöðvuðust skömmu eftir flugtak í apríl 1952. HAFÐI Í FÖR MEÐ SÉR MIKLAR UMBÆTUR Á SVIÐI FLUGÖRYGGIS Allir um borð lifðu af höggið sem vélin fékk á sig þegar hún skall á haffletinum. Farþegar áttu þó í erfiðleikum með að finna björgunarvesti og -báta. Vélin sökk hratt í hafið og af þeim 69 sem voru um borð lifðu aðeins 17 af.Ráðist var í miklar umbætur á sviði flugöryggis eftir slysið og kynning á öryggisatriðum var