Hútar réðust á tvö olíuflutningaskip á Rauðahafi

Hútar í Jemen sögðu í kvöld að þeir hefðu ráðist á tvö olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu á Rauðahafi. Hútar, sem eru hliðhollir Írönum, tilkynntu í vikunni um hafnbann á sádi-arabískar hafnir og vöruðu alþjóðleg skip við því að sigla um Rauðahafið.Hútar ráða yfir landsvæði nærri Bab el-Mandeb-sundinu sem liggur á milli Jemens og Djíbútí. Sundið tengir saman Rauðahafið og Adenflóa og er mikilvæg siglingaleið fyrir olíu, rétt eins og Hormússund sem er hinum megin á Arabíuskaganum. Að mati sérfræðinga eru aðgerðir Húta taldar geta bætt samningsstöðu Írana. GÆTI LENGT FLUTNINGSTÍMA OG AUKIÐ KOSTNAÐ UMTALSVERT Fimm olíuflutningaskip sneru við á Rauðahafi í dag til að forðast Bab el-Mandeb-sund. Þrjú skip til viðbótar, sem voru á leið til Kína og Indlands full af olíu, gerðu slíkt hið sama á
Hútar réðust á tvö olíuflutningaskip á Rauðahafi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd