Frá Grindavíkurvegi. Lokað verður á milli Reykjanesbrautar og Bláa lónsins hluta úr degi á morgun.RÚV / Ragnar VisageVegagerðin vekur athygli á því að á morgun, fimmtudag, verður Grindavíkurvegi lokað milli Reykjanesbrautar og Bláa lónsins vegna malbikunar á hringtorgi við Reykjanesbraut. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir standi yfir frá klukkan níu í fyrramálið til klukkan fimm síðdegis.Hjáleið verður um Hafnaveg og Nesveg. Vegfarendur eru beðnir að virða merkingar og aka varlega.