Tjaldsvæði á Austurlandi eru mörg hver stappfull af sólarþyrstum Íslendingum í sumarfríi en veðrið á suðvesturhorninu hefur leikið íbúa höfuðborgarinnar grátt síðustu daga. Aðsóknin sé álag bæði á starfsfólk og innviði en vinna hafi verið lögð í uppbyggingu tjaldsvæða á Austfjörðum síðustu ár.