Keypti keðjusög, líkpoka og skóflu nokkrum dögum eftir morðið

Bandaríski tónlistarmaðurinn D4vd, eða David Anthony Burke, sem er ákærður fyrir morðið á hinni 14 ára Celeste Rivas Hernandez, er sagður hafa keypt líkpoka, keðjusög og skóflur aðeins nokkrum dögum eftir andlát stúlkunnar.Lík Hernandez fannst sundurlimað í skotti yfirgefins bíls sem skráður var á listamanninn. Hennar hafði þá verið saknað síðan árið áður. Burke hafði reynt að farga bílnum en vegna mikillar lyktar sem stafaði frá honum komst lögregla á snoðir um Hernandez.Mál hins 21 árs Burke er til meðferðar hjá saksóknurum í Los Angeles í Kaliforníuríki í vikunni. Hann sætir ákæru fyrir að hafa myrt stúlkuna, beitt hana kynferðislegu ofbeldi og fyrir að limlesta hana. NOTAÐI EIGIÐ KORT TIL ÞESS AÐ KAUPA KEÐJUSÖG, LÍKPOKA OG SKÓFLU Í rétti kom fram að Burke hefði notast við dulnefni e
Keypti keðjusög, líkpoka og skóflu nokkrum dögum eftir morðið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd