Salvör Norðdal umboðsmaður barna segir ljóst að ekki sé farið eftir lögum um eftirlit með fósturbörnum. Hún segir gott og vel að hafa góðan lagaramma en að mikið sé að ef honum er ekki fylgt.Nýlega kom út skýrsla Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV) um fósturheimili. Úttektin sem skýrslan byggir á var gerð eftir umfjöllun Kveiks um Bakkakotsmálið, þar sem kom í ljós að drengir sem dvöldu þar urðu fyrir ofbeldi af hálfu fósturforeldris. Meðal þess sem kemur fram í skýrslunni er að 46% fósturheimila hafi ekki tilskilin leyfi og að eftirlitsheimsóknum barnaverndar sé ábótavant.Í barnaverndarlögum er gerð krafa um að eftirlit á fósturheimili fari að lágmarki fram tvisvar sinnum fyrsta árið sem barn er í fóstri og a.m.k. einu sinni á ári eftir það. Við yfirferð upplýsinga frá barnave