Áður óþekkt apategund fannst djúpt í frumskógum Kongó og hefur tegundin fengið nafnið Colobus congoensis. Um er að ræða dökkan lítinn apa sem fannst í Lomami-þjóðgarðinum en eftirtektarverðast við útlitið eru appelsínugular varir hans. Greint er frá þessu í júlíútgáfu vísindatímaritsins PLOS One.