Bandaríkin og Sádí Arabía semja um kjarnorkusamstarf

Bandaríkin og Sádí Arabía skrifuðu í kvöld undir tvo samninga um kjarnorkumál. Annars vegar um friðsæla samvinnu í kjarnorkumálum og hins vegar tvíhliða samning um kjarnorkuöryggisráðstafanir. Undir samningana skrifuðu Chris Wright og Abdulaziz Bin Salman prins, orkumálaráðherrar þjóðanna tveggja.Í tilkynningu frá orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna segir að samningarnir leggi lagalegan grundvöll að áratugalöngu samstarfi virði milljarða dollara. Þá munu þeir stuðla frekar að takmörkun á útbreiðslu kjarnorkuvopna á heimsvísu. Samningurinn um friðsæla samvinnu í kjarnorkumálum muni tryggja bandarískum fyrirtækjum „mjög gott aðgengi“ að sádíarabísku kjarnorkuáætluninni.Samningarnir bíða nú samþykkis öldungadeildar Bandaríkjaþings.Wright segir að samningarnir muni standa undir hæstu kröfum um kja
Bandaríkin og Sádí Arabía semja um kjarnorkusamstarf

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd