Innbrotafaraldur geisar í miðborg Reykjavíkur. Frá mánaðamótum hafa yfir sextíu innbrot verið tilkynnt á varðsvæði lögreglustöðvar eitt. Lögreglan telur þau ekki vera skipulagða glæpastarfsemi heldur tilviljunarkennd innbrot á heimili og í fyrirtæki. Þrír hafa verið handteknir vegna gruns um að eiga aðild að hluta þessara innbrota en einn þeirra var handtekinn í morgun.Hildur Björnsdóttir borgarstjóri Reykjavíkur boðaði til samráðsfundar í gær með lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, íbúasamtökum í miðborginni, Samtökum verslunar og þjónustu og rekstraraðilum á svæðinu.Að sögn Hildar var á fundinum rædd tölfræði lögreglunnar um innbrotafaraldurinn og til hvaða aðgerða mætti grípa. Þar á meðal var rætt um aukið myndavélaeftirlit í miðborginni.„Við rekum í samstarfi við lögregluna og neyðarlínu