Fæstir gætu leikið eftir svaðilfarir útlagakindarinnar Flekku, sem var handsömuð á Hornströndum á sunnudaginn eftir næstum eitt og hálft ár á flakki.Alexander Valur Wium Brynjólfsson og félagar hans voru á siglingu á Hornströndum þegar þeir sáu eitthvað lifandi í klettunum.„Þeir hugsa að þetta sé einhver stór tófa og ég segi við hann já það gæti verið en mér sýnist þetta frekar vera rolla,“ segir Alexander Valur.Þegar bjarga átti kindinni gerði hún sér lítið fyrir og stakk sér til sunds. Fyrir rest náðist að bjarga henni.Í ljós kom að kindin var frá Melum 2 í Árneshreppi á Ströndum. Bærinn eru um 70 kílómetrum suðaustan við staðinn þar sem hún fannst.Flekka þarf ekki óttast sláturhúsið í haust, því hún fær að lifa í friði og spekt hjá lista- og prjónakona í nágrenninu.