Umfangsmikil leit að einstaklingi stendur nú yfir í Lunda og Gerðahverfi á Akureyri. Þetta staðfestir Lögreglan á Norðurlandi eystra í samtali við fréttastofu. Frekari upplýsingar verða ekki veittar að svo stöddu. Allar björgunarsveitir á Eyjafjarðarsvæðinu hafa verið kallaðar út og aðstoða lögreglu við leitina.