Bandaríkjaforseti hótar að sprengja brú og orkuver í Íran fyrir hverja árás sem þeir gera á Hormússundi. Bandaríkjaher hefur gert loftárásir á Íran ellefu daga í röð og Íranar svarað í sömu mynt. Olíuverð hækkaði snarpt í dag og fór yfir 95 bandaríkjadali, í fyrsta skipti í sex vikur. HÓTA ÁRÁSUM OG HEFNDARÁRÁSUM Donald Trump Bandaríkjaforseti hafði í hótunum á samfélagsmiðli sínum Truth Social í dag. Þar sagði hann Bandaríkin ætla að sprengja og eyðileggja eina brú og eitt orkuver, meðal annars í höfuðborginni Tehran, í hvert skipti sem Íranar skytu á skip á Hormússundi.Bandaríkin hafa gert loftárásir á Íran ellefu daga í röð eftir að vopnahléi milli ríkjanna var slitið. Það hafði verið í gildi síðan í apríl. Bandaríkjaher gerði loftárásir á eyjuna Larak undan strönd Írans í Hormússund