Vilja þyngja refsingu vegna upplýsingaóreiðu fyrir forsetakosningar

Frönsk stjórnvöld hafa áhyggjur af erlendum afskiptum vegna forsetakosninga sem verða næsta vor. Til að stemma stigu við upplýsingaóreiðu í aðdraganda kosninganna kynntu stjórnvöld lagafrumvarp sem felur í sér þyngri refsingu.Í málum sem teljast árás á traust á kosningum gætu brotlegir átt allt að þriggja ára fangelsi yfir höfði sér og 45 þúsund evra sekt. Eins og er gætu brotlegir átt yfir höfði sér eins árs fangelsi og fimmtán þúsund evra sekt.Laurent Nuñez, innanríkisráðherra Frakklands, segir að fangelsisrefsingin gæti þyngst í sex ára dóm í tilfellum þar sem brot eru framin fyrir hönd erlendra ríkja, fyrirtækja eða samtaka.„Þetta á við þegar brotið, það að hafa áhrif á kosningaúrslit, er framið í því skyni að þjóna hagsmunum erlends ríkis, fyrirtækis eða stofnunar.“Samkvæmt núgildandi
Vilja þyngja refsingu vegna upplýsingaóreiðu fyrir forsetakosningar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd