Aðstoðarframkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands segir að ástæða sé til að hafa áhyggjur af auknu atvinnuleysi. Hún hefur litla trú á að skerðing atvinnuleysistrygginga hafi jákvæð áhrif.Atvinnuleysi mældist fimm prósent í vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar í júní. Það er rúmum tveimur prósentustigum hærra en það var á sama tíma í fyrra, þegar það var tvö komma átta prósent.„Horfur á vinnumarkaði hafa núna undanfarið ár farið mjög versnandi og atvinnuástandið hefur í raun og veru ekki verið verra síðan í heimsfaraldrinum,“ segir Henný Hinz, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ.Sambandið hefur sérstakar áhyggjur af atvinnuleysi í hópi 16 til 24 ára.„Atvinnuleysi í þeim hópi er að mælast nú hjá Hagstofunni 12% og það er veruleg aukning frá sama tíma í fyrra þegar atvinnuleysi var rétt ríflega 5% í þes