Ekki eru neinar samræmdar reglur um aldurstakmark í útiklefa sundlauga landsins. Í júlíbyrjun var greint frá því að 18 ára aldurstakmark hefði verið sett í útiklefa sundlauga í Reykjavík þar sem ekki er föst viðvera starfsfólks. Ákvörðunin var tekin til þess að tryggja öryggi barna í laugunum.Það eru þó ekki allar laugar með aldurstakmark í útiklefa.Til að mynda eru ekki aldurstakmörk í útiklefa lauga Akureyrarbæjar, Kópavogsbæjar eða Hafnarfjarðar, samkvæmt svörum við fyrirspurn fréttastofu.Í svari frá Kópavogslaug segir að ekki hafi komið upp nein atvik sem gefi ástæðu til þess að setja aldurstakmark, starfsfólk hafi gott eftirlit með sundlaugagestum í útiklefum.Fyrir nokkru var sett 16 ára aldurstakmark í útiklefa Sundhallar Selfoss og í útiklefa sundlaugarinnar í Þorlákshöfn.Í svörum S