Tæknifyrirtækið OpenAI hefur greint frá því að gervigreindarlíkön þess hafi sloppið undan prófi sem var verið að gera á þeim, komist á netið og hakkað sig inn í tölvukerfi sprotafyrirtækisins Hugging Face af sjálfsdáðum.Hugging Face hafi uppgötvað öryggisbrestinn, haft uppi á gervigreindarlíkaninu inni í kerfum sínum og komið böndum á það.„Við teljum þetta atvik, þar sem nýjasta netviðbúnaðargetan kemur við sögu, vera fordæmalaust og bregðumst við í samræmi við það,“ segir í sameiginlegri tilkynningu frá OpenAI og Hugging Face.„Við deilum bráðabirgðaniðurstöðum á þessu stigi málsins til að aðstoða fyrirtæki að skilja hvað gerðist og meta hvaða líkön eru fær um þetta núna. Við höldum áfram ítarlegri rannsókn ásamt Hugging Face og deilum frekari upplýsingum um veikleikana, atvikið og niðurst