Yfir þúsund dauðsföll rakin til ebólufaraldursins í Kongó og Úganda

2473 tilfelli af ebólu hafa greinst í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó síðan faraldri var lýst yfir um miðjan maí. 999 hafa látist af völdum ebólu í landinu. Í nágrannaríkinu Úganda hafa 20 tilfelli og tvö dauðsföll verið skráð. Þetta kemur fram í yfirliti sem Alþjóðaheilbrigðisstofnunin birti í dag.Neyðarástandi var lýst yfir þann 15. maí eftir fjölda dauðsfalla í Ituri í norðausturhluta Kongó. Þetta er í sautjánda skiptið sem ebólafaraldur geisar í landinu.Erfiðlega hefur gengið að ráða við faraldurinn með smitrakningu, bæði vegna mikillar fátæktar á svæðinu og ofbeldis, að sögn Trish Newport, stjórnanda neyðaraðgerða hjá Læknum án landamæra í Bunia, höfuðborg héraðsins.Sumir hinna látnu séu grafnir af fjölskyldumeðlimum án nokkurra smitvarna. Það flýti fyrir útbreiðslu smita.„Eitt dauðsfall
Yfir þúsund dauðsföll rakin til ebólufaraldursins í Kongó og Úganda

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd