Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul

Veðurstofan varar við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul sem gert hafa aðkomu að jöklinum varasamari og erfiðari. Óstöðugur jökulís við jökullónin og grjóthrun úr hlíðum geta skapað hættu fyrir fólk sem fer um svæðið.Miklar breytingar hafa átt sér stað við sporð Sólheimajökuls á undanförnum vikum sem gert hafa aðkomu að jöklinum erfiðari, að því er fram kemur í tilkynningu Veðurstofunnar.Lítið lón hefur myndast austan við jökulsporðinn, íshaft sem liggur að jöklinum hefur þynnst og hætta er á grjóthruni á aðkomuleiðinni að suðaustanverðum jöklinum.Í ljósi breytinganna hafa ferðaþjónustufyrirtæki fellt niður ferðir til að fyrirbyggja slys á meðan hugað er að nýjum og öruggari leiðum.Ferðalangar eru einnig hvattir til að skoða brattar hlíðar vel og vera vakandi fyrir merkjum um grjóthrun
Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd