Vefmiðillinn Vísir hefur sent frá sér leiðréttingu vegna fréttar sem birtist fyrir nærri tveimur vikum þar sem ranglega var haft eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra að hún hefði rætt við Rob Jetten forsætisráðherra Hollands.Fyrr um daginn hafði Morgunblaðið greint frá ummælum forsætisráðherrans í hollenska þinginu, þar sem hann svaraði því til að það væri stefna hollensku stjórnarinnar að fiskveiðistefna ESB væri ófrávíkjanleg fyrir ný aðildarríki.Í viðtalinu við Vísi var Þorgerður spurð út í þessi ummæli forsætisráðherrans og haft eftir henni óbeint að ummælin væru ekki í samræmi við samtöl hennar við Jetten og fleiri.Í kjölfarið sendi Morgunblaðið fyrirspurn á hollensk stjórnvöld þar sem spurt var út í það hvort Jetten eða aðrir fulltrúar hollenskra stjórnvalda hefðu s