Íslendingar eiga ekki að þykjast vera of fínir til að íhuga hvort aðild að Evrópusambandinu sé valkostur fyrir Ísland því að sjálfsögðu hljóti hún að vera það. Það sé svo allt annar handleggur hvort það sé besti kosturinn sem völ er á.Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir sat á Alþingi í tíu ár og sagði af sér þingmennsku í apríl. Hún tekur á næstunni við sem sendiherra Íslands í London. Á tíu ára þingtíma var hún ráðherra í sjö ár, þar á meðal utanríkisráðherra, og varaformaður Sjálfstæðisflokksins í sjö ár. HÁTÍÐARRÆÐA Á SKÁLHOLTSHÁTÍÐ Þórdís Kolbrún flutti hátíðarræðu á Skálholtshátíð um helgina og fór þar vítt og breitt yfir stöðu alþjóðamála, stríðsátök og útþensluóra svokallaðra sterkra leiðtoga sem væri uppskrift að hörmungum. Og hún fjallaði um Evrópusambandið og sagði orðrétt: