Vestmannaeyjabær áfrýjar skaðabótamáli til Landsréttar

Vestmannaeyjabær ætlar að áfrýja sýknudómi Héraðsdóms Suðurlands í skaðabótamáli bæjarins gegn Hugin, Vinnslustöðinni og VÍS vegna skemmda á neysluvatnslögn í Vestmannaeyjahöfn.Þetta staðfestir Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri í samtali við fréttastofu. Málið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja í dag.„Bæjarráð samþykkir samhljóða að áfrýja málinu til Landsréttar enda mikilvægt að fá úr því skorið hvort þak á ábyrgð haldi á öðrum dómstigum. Sömu hagsmunir og ástæður eru enn í gildi og þegar ákvörðun var tekin um að sækja fullar bætur vegna tjónsins á vatnslögninni,“ segir í niðurstöðu bæjarráðs.Ráðið fer með heimildir bæjarstjórnar á meðan á sumarleyfi stendur og telst málið því fullafgreitt.Vestmannaeyjabær höfðaði skaðabótamál á hendur fyrirtækjunum vegna skemmda sem urðu á neys
Vestmannaeyjabær áfrýjar skaðabótamáli til Landsréttar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd