Sprengjusérfræðingar að sunnan kallaðir til í Vaðlaheiði

Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar flugu til Akureyrar í gær vegna þess sem talið var að væri hugsanlega sprengja í heitum læk sem rennur rétt neðan við op Vaðlaheiðarganga vestan megin.Erlendir ferðamenn gerðu lögreglu viðvart á fjórða tímanum í gær eftir að þeir fundu hlutinn í læknum. Talsvert viðbragð var á svæðinu í gær vegna málsins en ekki var farið í víðtækar lokanir, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Fljótlega var talið ólíklegt að hluturinn gæti sprungið að sjálfu sér.Lækurinn myndaðist þegar bormenn í Vaðlaheiðargöngum lentu á heitri vatnsæð við gerð ganganna og hefur síðan verið vinsæll baðstaður bæði heimamanna og ferðamanna sem eiga leið um svæðið.Samkvæmt lögreglunni á Akureyri fer ákveðið verklag í gang þegar slíkar tilkynningar berast og haft var samband við sprengj
Sprengjusérfræðingar að sunnan kallaðir til í Vaðlaheiði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd