Norðmenn verða að hafa styrk til að berjast á móti hatri og hryðjuverkum, segir Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs. 15 ár eru frá hryðjuverkunum í Útey og Osló þar sem 77 létu lífið. ÓTRÚLEGUR STYRKUR Í SAMFÉLAGINU Klukkan 15:25 föstudaginn 22. júlí 2011 sprakk kröftug bílsprengja í stjórnsýsluhverfinu í miðborg Oslóar. Hundruð særðust og átta létu lífið. Árásarmaðurinn hélt síðan í Útey, samkomustað ungliðahreyfingar norska Verkamannaflokksins.Þar, um tveimur tímum eftir sprenginguna, hóf hann skothríð á börn og ungmenni sem voru í eynni. Hann skaut 69 til bana og særði enn fleiri. Árásarmaðurinn, Anders Behring Breivik, hlaut þyngsta fangelsisdóm sem norsk lög leyfa.Minningarathöfn var í morgun við bygginguna þar sem sprengingin varð fyrir 15 árum. Støre var meðal ræðumanna. Í