Árum saman á Schengen-svæðinu þrátt fyrir endurkomubann

Landsréttur staðfesti á dögunum gæsluvarðhaldsúrskurð yfir karlmanni sem dvalið hefur ólöglega á Schengen-svæðinu árum saman.Lögregla stöðvaði manninn við akstur í Reykjavík 13. júlí. Hann reyndist vera með útrunnið dvalarleyfi og verður vísað úr landi.Þegar lögregla fletti manninum upp í upplýsingakerfi Schengen kom í ljós að hann sætti endurkomubanni á Schengen-svæðinu til 2028. Lögregla fór því að dvalarstað mannsins og virtist sem hann hygði á brottför. Eftir að maðurinn fékk endurkomubann í Sviss dvaldi hann í Þýskalandi og á Spáni og að lokum í þrjú ár í Póllandi áður en hann kom hingað. Hann sætir gæsluvarðhaldi fram í næstu viku.Landsréttur staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjaness.RÚV / Ragnar Visage
Árum saman á Schengen-svæðinu þrátt fyrir endurkomubann

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd