Lögregla veitti ökumanni eftirför sem ók vel yfir hámarkshraða á Arnarnesvegi. Þegar lögreglumenn gáfu ökumanninum merki um að stöðva akstur jók hann hraðann með þeim afleiðingum að hann missti stjórn á bílnum og klessti á ljósastaur.Í bílnum voru þrír farþegar auk ökumannsins. Enginn slasaðist en verulegt tjón varð á ljósastaurnum.Bíllinn var fjarlægður af vettvangi með kranabíl.Í Mosfellsbæ varð umferðaróhapp þar sem ökumenn hlutu minniháttar áverka. Kranabifreið fjarlægði annað ökutækið af vettvangi.Í póstnúmerum 102 og 109 voru menn fluttir með sjúkrabílum á slysadeild eftir að hafa fallið af rafmagnshlaupahjólum.RÚV / Ragnar Visage