Bandero, skip Paul Watson-samtakanna, hefur snúið aftur í íslenska efnahagslögsögu. Þetta staðfestir Magnús Pálmar Jónsson, staðgengill upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar.Yfirlýstur tilgangur ferða skipsins til Íslands er að stöðva Hvalveiðar Hvals hf.Magnús segir skipið gefa upp staðsetningu sína með reglulegu millibili. Hann segir gæsluna fylgjast grannt með ferðum þess, sem og allri annarri umferð á hafsvæðinu kringum landið.Bandero sigldi inn í efnahagslögsögu Íslands í lok júní.Fyrir tæpum tveimur vikum yfirgaf Bandero Íslandsstrendur og sigldi til Írlands til að koma slösuðum skipverja undir læknishendur. Þá sagði Paul Watson ætlunarverki skipsins á Íslandi ekki lokið og að það hygðist sigla aftur til Íslands við fyrsta tækifæri.